Leita í fréttum mbl.is
Embla

Gleðileg jól

Jólajól
Gleðileg jól kæru vinir :)


Gleðilegt sumar

Sumar?
Gleðilegt sumar kæru vinir.

Gleðileg jól

Jól 2010
Kæru vinir nær og fjær :)

Gleðileg jól. Hafið það sem allra best um jólin.

Kær kveðja,

Þór, Hulda, Tinna og Benjamín

Tinna í heimsókn á Slysó

Tinna Sól á Slysó
Það er alltaf sama stuðið hér á Suðurvangi. Tinna Sól náði að slasa sig á dögunum og auðvitað skelltum við okkur í heimsókn á Slysó. Sú heimsókn endaði með þessu gifsi.

Afmæli afmæli afmæli

Afmæli
Þessi krútt áttu afmæli á dögunum. Benjamín Bæring varð 2 ára 21. júlí og Tinna Sól varð 7 ára þann 4. ágúst. Bara gaman :)

Frábær ferð til Köben

Fyrir utan Segelckesvej 1
Síðustu vikur höfum við verið í Köben að hafa það gott. Við fengum lánaða íbúð í Frederiksberg, ekki langt frá Segelckesvej, og höfðum það gott saman. Tinna og Benjamín voru alveg að fíla Köben. Dagskráin var þétt en við fórum meðal á ströndina tvisvar sinnum, í dýragarðinn, í Tivoli, í Bonbon Land, í grillveislu í Karlslunde og til Malmö til að nefna eitthvað. Veðrið var frábært en hitinn var í kringum 25-28 gráður alla dagana og sólin skein á okkur nánast allan tímann. Ekki slæmt. Það eru komnar inn fjölmargar myndir frá ferðinni og má sjá þær myndir hér.

Það er svo gaman að flytja

180610 072
Það er mikið búið að gerast hjá okkur á síðustu vikum en við höfum meðal annars skellt okkur í bústað í Úthlíð, fagnað þjóðhátíðardegi Íslands á Víðistaðatúni og flutt. Já, við erum flutt, enn og aftur. Að þessu sinni reyndar aðeins upp um eina hæð. Það var góð tilbreyting. Hér má sjá nokkrar myndir frá þessum viðburðaríka mánuði.

Hér sjást Tinna og Benjamín flytja dótið sitt milli hæða.

Í sól og sumaryl

Jessss
Um helgina skelltum við okkur í sumarbústað á Bifröst. Veðrið var frábært og fjölskyldan var svo sannarlega "on fire". Allavega er pabbinn örlítið brenndur...

Svo sæt saman
Trampolínið var aðalmálið um helgina en heiti potturinn kom fast á hæla þess í öðru sæti. Það er greinilega komið sumar!

Hér sjást ormarnir í stuði!

Áfram FH

Áfram FH
Tinna Sól er að æfa fótbolta með 7. flokk kvenna hjá FH. Það hefur verið mikið að gera síðustu helgar hjá stelpunni en meðal annars tók stelpan þátt í KFC-mótinu í byrjun maí og Faxaflóamótinu viku síðar. Stelpan er eins og mamma sín, raðar inn mörkunum. Næsta mót er um næstu helgi en þá er það VÍS-mótið í Laugardalnum sem er málið. Áfram FH :)

Hér sést Benjamín hvetja systur sína á Faxaflóamótinu.

Gleðilegt sumar

300410 008
Já, það er komið sumar. Eins og venjulega var mikið fjör hjá okkur á Sumardaginn fyrsta. Stuðið byrjaði á Víðistaðatúni en þar tók Tinna Sól þátt í Víðafangshlaupi FH. Auðvitað stóð stelpan sig eins og hetja. Benjamín vildi hlaupa líka en því miður var ekki í boði hlaup fyrir hans aldurshóp.

300410 038
Tinna Sól fékk þennan fína verðlaunapening fyrir hlaupið. Síðan fórum við í miðbæ Hafnarfjarðar og skemmtum okkur þar saman með öðrum íbúum Hafnarfjarðar. Benjamín var samt áhugasamastur um lyftara sem var þarna á svæðinu.

300410 068
Sá var lukkulegur þegar hann fékk að sitja á "stóru gröfunni". Nýjasta æðið hjá stráknum er að horfa á gröfur á YouTube, bara gaman. Ástæðan fyrir þessum skyndilega áhuga á gröfum er sú að fyrir utan leikskólann síðustu vikur hafa gröfur og vörubílar verið fastir liðir eins og venjulega.

300410 081
Við skelltum okkur líka á Listasafn Hafnarfjarðar en þar er skemmtileg sýning í gangi fyrir börnin. Benjamín var samt ansi hissa yfir þessu öllu.

300410 089
Stelpurnar fóru meðal annars að dansa á safninu og það var dansatriði sem hefði sómað sér vel í Áramótaskaupinu. Síðan fórum við á myndlistasýningu í Mosó og í mat til ömmu og afa í Garðabæ. Sem sagt, endalaus gleði.

Hægt er að skoða fleiri myndir frá deginum hér.

Næsta síða »

Um okkur

Tinna Sól, Benjamín Bæring & foreldrar
Tinna Sól, Benjamín Bæring & foreldrar




Póstur: hhr4@hi.is
Sími: +354 562 8899
GSM: +354 699 2912
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband